Ert þú af óþekktu kyni?

"Samtals greindust 1863 einstaklingar með klamydíu á árinu 2007 og er það aukning miðað við árið á undan. Alls greindust 1108 konur með klamydíu og 692 karlar en í 63 tilvikum var kyn óþekkt."

Jæja, þetta segir í fréttinni.

Mig langar til að vita, hverjir eru af óþekktu kyni. Ert þú kannski einn af þeim?
mbl.is 1863 greindust með klamydíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stofnandi Tottenham fundinn

Jahérna, loksins er stofnandi Tottenham fundinn. Þó fyrr hefði verið.
mbl.is Steingerð höfuðkúpa af risa nagdýri rannsökuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Global Cooling?

Ja, a.m.k. miðað við veðrið í Evrópu að undanförnu.


Kannski Al Gore geri núna nýja mynd um umhverfismál og biðji svo Óskar að koma inn!
mbl.is Kaldasti vetur á Grænlandi í tíu ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju?

Af hverju ættu olíuríkin að vilja lækka olíuverð?

Hvað snertir Venesúela og arabaríkin kemur það sér svosem vel að halda verðinu háu af augljósum ástæðum og líka til að veikja efnahagskerfi Bandaríkjanna og Vesturlanda.

Af hverju ættu olíuríkin að vilja lækka olíuverð?
mbl.is Bush vongóður um að OPEC auki olíuframleiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Birta kortleggur pólítíkina

Þar sem Össur er dálítið ráðavilltur í pólítikinni hefur dóttir hans nú kortlagt pólítíkina svo pabbi geti ratað betur um refilstigu stjórnmálanna.


Hann byrjaði rólega en færðist smám saman yfir til vinstri, eins og hann sagði forðum í bráðskemmtilegu viðtali á RUV, í þættinum Á líðandi stundu, sem Ómar Ragnarsson, Sigmundur Ernir og Agnes Bragadóttir stjórnuðu.


Hann var þá stoltur Allaballi, en færðist síðan yfir í Alþýðuflokkinn og síðan í Samfó.  En stundum sér maður ekki betur en að hann sé nokkuð til hægri við miðju. Jafnvel hægra megin við Sjálfstæðisflokkinn.


En gott fyrir hann að dóttirin skuli hafa kortlagt pólítíkina. Því ef Össur virkilega er jafnaðarmaður, ætti hann helst heima í stærsta jafnaðarmannaflokki Íslands, Sjálfstæðisflokknum, en ekki í Kvennalistanum.


Kannski það standi á kortinu hennar Birtu?
mbl.is Dóttir Össurar kortleggur ráðuneytið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þýðir að deila við dómarann?

Nú verður Kristinn að passa sig að vega og meta rétt þá ráðgjöf sem aðstoðardómararnir veita honum. Ekkert rugl eins og síðast.

Og ef Kristinn tekur ekki gott og faglegt mat af ráðleggingum aðstoðarmanna sinna verður ráðist á hann í fjölmiðlum, á bloggsíðum, á Alþingi og víðar, og vísast mun Sigurður Líndal skrifa harðorðað álit gegn honum.

En síðan verður Þorsteinn Davíðsson bara dómari i næsta leik.


Málið dautt.


mbl.is Kristinn dæmir í Hamborg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svíarnir sofandi?

Jæja, gott er nú það, að Svíarnir skuli velja menn rækilega til að sofa í rúmum sínum. Hér rétt hjá mér er sænsk rúmaverslun, ætli Svíar séu þar sofandi akkúrat núna?

Æ, mér er svosem sama hvort Svíar hafi valið vel í rúm sín og mín vegna mega þeir sofa vært og rótt.


En ég vil síður að þeir spili góðan handbolta gegn okkar mönnum á fimmtudaginn. Áfram Ísland.
mbl.is Valinn maður í hverju rúmi hjá Svíum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Miskunnarlausi samherjinn

En allt snýst þetta um gróða auðvitað.
mbl.is Rækjuvinnslu hætt á Akureyri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og bráðum verður auðvald Bandaríkjanna í eigu útlendinga?

Útlendinga, sem etv kunna betur að reka fyrirtæki.

En þá er spurning hvort sósíalistar, m.a. hér á Íslandi, fari ekki að berjast fyrir rétti Bandaríkjanna til að þjóðnýta banka og aðrar merkilegar stofnanir?
mbl.is Citigroup afskrifar 18,1 milljarð dala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Strákarnir okkar eða "Íslenska landsliðið"?

olistef Hvað ætli ÓLi Stef sé að meina með þessari mynd?
mbl.is „Förum bjartsýnir út"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband