Áfram KR

Ja, það er nú ekki oft að ég segi þetta og meina. En ég vil að Suðurnesjamenn taki dolluna þetta árið og því gæti maður kyngt því all auðveldlega að KRingar velgi Hafnfirðingum undir uggum.

En síðan má KR mín vegna tapa rest. Málið dautt.


mbl.is Enn einn sigur FH á KR í Vesturbænum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Pétur Orri Gíslason

Því miður fyrir KR-inga þá er Pétur Marteins í banni og Gulli Jóns kominn aftur inn. En hann er nú orðinn eins og króatískur skriðdreki með 1 gír áfram og 5 bakkgíra.

 <br>

En verður Jónas Guðni áfram með fyrirliðabandið eða tekur Gulli við því? 

Pétur Orri Gíslason, 10.8.2008 kl. 17:01

2 Smámynd: Jóhanna Sigrún Jónsdóttir

og nú er hinn Hallferðsson komin á bekkinn í FH.

Jóhanna Sigrún Jónsdóttir, 10.8.2008 kl. 17:07

3 Smámynd: Snorri Bergz

Jæja, svo FRAMarinn í KR liðinu verður ekki með, og Gunnlaugur, sem Skaginn lét KR fá til að verða Trójuhest og skemma fyrir þeim svarthvítu, spilr.

En vonandi gerir Gunnlaugur ekki mörg mistök. En með þetta í huga óttast ég hið versta fyrir KR.

Snorri Bergz, 10.8.2008 kl. 17:07

4 Smámynd: Snorri Bergz

Já, Hanna Rúna, ég tók eftir því. Ég efa ekki að mágur og mágkona þín séu ánægð.

Snorri Bergz, 10.8.2008 kl. 17:10

5 Smámynd: Zmago

Það er svona álíka líklegt að KR vinni FH og að íslendingur hampi gullverðlaunum í sundi á OL2008

Zmago, 10.8.2008 kl. 17:13

6 Smámynd: Jóhanna Sigrún Jónsdóttir

jú jú ánægð með drengina.. verst þér séu í FH... hver heldur með fótboltaliði sem dregur nafn sitt af Fimleikafélagi Hafnarfjarðar? H&#39;akon þyrfti að kom í Haukana

Jóhanna Sigrún Jónsdóttir, 10.8.2008 kl. 17:15

7 Smámynd: Snorri Bergz

Já, sammála Hanna Rúna. En hvernig er með Hilmar þinn? Hvernig gengur?

Og "Zmago" Haukamaður. Hvernig geturðu stutt FH? Og hvernig er "Hlíðarendinn"?

Snorri Bergz, 10.8.2008 kl. 17:16

8 Smámynd: Pétur Orri Gíslason

Snorri ég þakka þér einnig stuðningsyfirlýsinguna við Keflavík.

Áfram Keflavík! 

Pétur Orri Gíslason, 10.8.2008 kl. 17:18

9 Smámynd: Jóhanna Sigrún Jónsdóttir

gegnur vel þegar hann er inn á en hann er búin að vera mikið meiddur.  Vona að hann sé að koma til núna. Lenti í því í fyrstu umferð núna að tábrotna, en er farin að spila fyrir stuttu. Haukarnir eru í fjórða sæti og eru að ég held ekki að fara ofar en það í sumar. Hér er stöðutaflan:

http://fotbolti.net/isboltinn.php?ligueid=16790&type=s

Áfram Haukar

kv Hanna

Jóhanna Sigrún Jónsdóttir, 10.8.2008 kl. 17:23

10 Smámynd: Zmago

Bara ískalt mat minn kæri, en hefur ekkert með stuðning við FH að gera. Veistu hvað það er langt síðan þeir röndóttu úr vesturbænum hafa lagt FH í alvöru leik?

Svo er ég smekkmaður og held með Þrótti, en hvorki Val né Haukum. Hef þó smá taugar til Haukanna, enda tefli ég með þeim

Zmago, 10.8.2008 kl. 17:24

11 Smámynd: Snorri Bergz

Nú, ertu Þróttari? :) Hélt þú værir Hlíðarendapiltur. Sá það amk á blogginu hér nýlega

J&#39;a, ég hef smá taugar til Haukanna líka, af sömu ástæðu. Var nú meas tilnefndur til íþróttamanns Hauka þarna ekki fyrir svo löngu.

En síðan var ég að "vinna" á Vellinum eitt sumar þegar ég var unglingur og hef því smá taugar til IBK líka. Þetta var snilldarsumar, maður var í spes vinnuflokki á vegum ÍAV, þar sem voru börn hluthafa saman í einum flokki. Við gerðum minnst lítið annað en að "vera ekki fyrir vinnandi fólki". Og maður hafði það næs þarna! Og stutt í Keflavíkina sem þá var.

Snorri Bergz, 10.8.2008 kl. 17:46

12 Smámynd: Snorri Bergz

En Pétur Orri, var að sjá bloggið þitt. Ok, Man Utd get ég lifað við. Eins gott að þú styður ekki Liverpool eða Tottenham.

Það þyrfti að vera félag sem hefði það að markmiði sínu að dissa Spurs, Liverpool og KR. Efast þó um að lillo.blog.is hefði áhuga á að vera með.

Snorri Bergz, 10.8.2008 kl. 17:48

13 Smámynd: Snorri Bergz

Jæja, FH komið yfir, tvö mörk gegn engu KRinga.

Greinilegt að Gunnlaugur er kominn í vörnina.

Snorri Bergz, 10.8.2008 kl. 17:52

14 Smámynd: Zmago

Skilurðu núna Snorri? Þegar FH-ingar féllu seinast, fengu þeir samt sín 6 skyldustig á móti KR. Hafa ekki tapað deildarleik á móti þeim síðan þeir komu upp aftur.

Já þetta með Hlíðarendann   Þú þarft að fara að hella uppá tengdapabba þinn aftur. Karlinn er svo ljómandi skemmtilegur með víni.

Zmago, 10.8.2008 kl. 18:00

15 Smámynd: Snorri Bergz

Já, en maður vonaði samt...en þá þarf FH bara að tapa stigum annars staðar. Ef það gerist, mun ég líta til baka og glotta að þessum sigri á KR...

Æ.já, ég mun amk ekki hella upp á svoleiðis blöndu. En gott að þú skyldir hafa gaman að þessari vitleysu.

Snorri Bergz, 10.8.2008 kl. 18:03

16 Smámynd: Pétur Orri Gíslason

Snorri það er mjög sjaldan eitthvað fallegt kemur úr mínum munni þegar Liverpool á í hlut. Sem United stuðningsmaður á ég ekki til illa taug í garð Tottenham manna.

Pétur Orri Gíslason, 10.8.2008 kl. 18:19

17 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

En hvað á það að þýða að vera á móti KR. Ég ætti að taka ykkur alla á hnén og flengja ykkur rækilega.

Þessi Zmago? Er þetta feiti Hlíðarendinn sjálfur?

Sigurður Sigurðsson, 10.8.2008 kl. 18:34

18 Smámynd: Snorri Bergz

Jæja, KRingar náðu að minnka muninn.

Snorri Bergz, 10.8.2008 kl. 18:44

19 Smámynd: Snorri Bergz

Já, Zmago er Sigurður Sverrisson, a.k.a. Kokkurinn. Mín vegna má stríða honum aðeins. Held að hann hafi gott af því

Snorri Bergz, 10.8.2008 kl. 18:45

20 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Þú segir nokkuð. Ég nenni þó ekki stríða honum svona bláedrú og ekki þér heldur.

En ég skal skamma hann aðeins ef ég fæ mér nokkra létta á eftir ef KR tapar.

Sigurður Sigurðsson, 10.8.2008 kl. 18:48

21 Smámynd: Zmago

Eftir 15 mínútur hefst leikur Þróttar og Fram.

Sama ískalda stöðumat segir mér að mínir menn tapi, enda gengið bölvanlega með þá bláklæddu.

ps. Mín vegna má stríða mér alveg helling. Ég hef nebbnilega svo gott af því

Zmago, 10.8.2008 kl. 19:01

22 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Já, áfram FRAM.

En jæja, KR búnað tapa. Ætli sá gamli sé dottinn í það aftur?

Sigurður Sigurðsson, 10.8.2008 kl. 19:37

23 Smámynd: Snorri Bergz

Ja, þú verður að segja okkur það?

En ég er viss um að Zmago býður spenntur?

En tek undir með þér: Áfram FRAM.

En ég hélt að þér væri illa við Fram?

Snorri Bergz, 10.8.2008 kl. 19:40

24 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Samasem bláedrú.

Neinei, drengur. Þú varst að skrifa Áfram KR svo ég segi Áfram Fram til að taka undir með þér.

En hins vegar er mér ekki við lið í platröndóttum búningum. Þar fóru góðar rendur í hundskjaft.

Sigurður Sigurðsson, 10.8.2008 kl. 19:42

25 Smámynd: Snorri Bergz

Jæja, Framarar komnir yfir með marki McShanes.

Í sumar hafa Framarar aldrei misst stig þegar þeir komust yfir og vonandi verður engin breyting núna.

Vonandi hefur hið ískalda mat Kokksins hitt í mark.

Snorri Bergz, 10.8.2008 kl. 19:53

26 Smámynd: Zmago

Kokkum er illa við ískaldan mat

Zmago, 10.8.2008 kl. 20:23

27 Smámynd: Snorri Bergz

Úff, Þróttur að fá víti á 86 mínútu. Hlýtur að vera dómaraskandall.

Snorri Bergz, 10.8.2008 kl. 21:05

28 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Hlíðarendinn er spámannlega vaxinn en hafði þetta þó vitlaust. Ef hann er fullur má hann endilega koma í heimsókn til mín hingað í Vesturbæinn og helst að hafa eitthvað með sér.

Sigurður Sigurðsson, 10.8.2008 kl. 21:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband