"Hægri umferð 40 ára gömul"

haegriÆææ, ég er ekki í skapi fyrir svona núna. En ég verð þó að taka ofan hattinn fyrir Mogganum að leyfa menntaskólanemum að koma í starfskynningu og sletta úr pennum sínum á vefnum; og fá borgað fyrir það!

Ég var að enda við að lesa yfir 30 síðna "ritsmíð" þar sem hver einasta setning var móðgun við íslenskt málfar og málskilning, þrátt fyrir háskólamenntun viðkomandi.

Ég þoli ekki meira í bili og neyðist því greinilega til að sleppa því að lesa mbl.is, a.m.k. eitthvað fram eftir degi. 

Þá er nú visir.is skárri. Þar má þó ganga að því vísu, að ein og ein frétt sé vel skrifuð.


mbl.is Hægri umferð 40 ára gömul
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband