Af hverju erum við svona ruglaðir?

Lítil dæmisaga (sem Kokkurinn sendi mér í gærkvöldi)

Íslenskt og japanskt fyrirtæki ákváðu að keppa í róðri á áttæringi.


Liðsmenn frá báðum fyrirtækjum æfðu stíft og voru í toppformi þegar að sjálfri keppninni kom.  Japanirnir urðu 1 km á undan íslenska liðinu.
Eftir útreiðina var mórallinn að sjálfsögðu heldur slæmur í íslenska fyrirtækinu og yfirstjórnin ákvað að fyrirtækið yrði að vinna keppnina að ári. 

Var settur á fót vinnuhópur til að skoða vandamálið.
Eftir heilmiklar pælingar komst vinnuhópurinn að því að Japanirnir létu 7 menn róa en einn stýra.  Í íslenska liðinu var það einn sem réri og sjö sem stjórnuðu.  Vegna þessarar miklu krísu afréð yfirstjórn íslenska fyrirtækisins að fá ráðgjafarfyrirtæki til að kanna strúktur íslenska liðsins og gera nýtt skipurit ef á þyrfti að halda.
 
Eftir margra mánaða vinnu komust stjónunarfræðingarnir að því að í íslenska bátnum væru það of margir sem stjórnuðu en of fáir sem réru.  Með hliðsjón af skýrslu sérfræðinganna var strax ráðist í skipulagsbreytingar.  Í stað þess að hafa sjö stýrimenn, einn áramann voru nú hafði fjórir stýrimenn, tveir yfirstýrimenn, einn leiðtogi stýrimanna og einn áramaður.  Að auki var áramaðurinn “motiveraður" samkvæmt meginreglunni:  “Að breikka starfssvið starfsmanna og veita þeim meiri ábyrgð".

Næstu keppni unnu Japanirnir með 2 km forskoti. Íslenska fyrirtækið rak að sjálfsögðu áramanninn með tilliti til lélegrar frammistöðu, en greiddi bónus til stjórnarinnar vegna þeirrar miklu vinnu sem hún hafði innt af hendi.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Karl Lúðvíksson

hehe, þetta er nokkuð nett lítil dæmisaga. Minnir þó frekar á opinbera stofnun. Vinur minn einn vinnur sem tæknimaður á RÚV og tjáði mér það að þetta væri eins og öfugur píramídi, neðst væru örfáir tæknimenn sem héldu öllu batteríinu gangandi. Þegar kom að því að breyta einhverju, eða ef mistök áttu sér stað, voru viðbrögðin nákvæmlega eins og í myndinni Office Space, 5-7 yfirmenn mættir á svæðið, allir talandi í hringi, með einhverja fundi og bull, sem skilaði nákvæmlega engu nema einhverri umröðun í valdataflinu og goggunarröðinni, og einhver einn tæknimannanna leysti þetta bara sjálfur að lokum. Þegar kom að því að það þurfti að reka einhvern vegna fjárskorts eða yfirvaldssýniþörf, voru það alltaf tæknimennirnir sem fuku, hinn næfurþunni grunnur öfuga píramídans.

Sigurður Karl Lúðvíksson, 30.9.2007 kl. 16:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband