Er 1 = 1400?

d_bloggi_heil_hamasAmk fara íslömsku samtökin, sem rændu Shalit, fram á 1.400 palestínska fanga, suma háttsetta, aðra morðingja, suma bara fanga, í skiptum fyrir einn ísraelskan hermann.

Greinilegt að sjálfsálitið er ekki ýkja hátt, úr því þeir verðleggja einn Ísraela jafnhátt og 1.400 Palestínumenn!

En verði orðið við þessu, mun þetta því miður bara halda áfram og hvað gerist svo, þegar engir fangar verða eftir? Þá þyrfti að fara á stúfana og handtaka nokkur þúsund Palestínumenn, bara til að eiga nóg til að skipta á við einn hermann?

Og Haniyah gerir auðvitað ekkert í málinu, enda er þetta honum þóknanlegt svosem, eða passar amk við hugmyndafræði hans -  þe. að vopnin skuli tala. Og núna var hann að segja eitthvað í gær, en það er ótrúverðugt, eins og ég ræddi í gær.

En í öllu falli eru þessi skipti út úr korti. Ég væri þó hlynntur slíku, ef t.d. Kaupþing myndi taka upp sömu reglu. Þá færi ég og skipti 5.000 kr. peningi og yrði ríkur.


mbl.is Shalit: Ég hef verið í gíslingu í eitt ár og þarf læknisaðstoð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband