Arfur kommúnismans

steingrimur nyvaknadurÞetta eru svosem engar fréttir, í sjálfu sér. (Nema auðvitað það, að A-Þýskaland sé enn til; betra hefði verið að segja "austurhluta Þýskalands") Allir, sem vilja vita, geta auðveldlega lesið sér til um, hvernig stjórn kommúnista í A-Þýskalandi gjöreyðilagði þetta frjósama og iðnvædda landsvæði.

Og þetta ríki, A-Þýskaland, var nú sælustaður íslenskra kommúnista, m.a. Hjörleifs Guttormssonar og Svavars Gestssonar, já, og margra annarra, sem í dag kalla sig sósíalista.

En lausnin á vandamálinu er ekki endilega sú, að skipta um nafn; hætta að kalla sig kommúnista og segjast nú vera sósíalistar. Vandamálið er, að þrátt fyrir nafnbreytingu hafa skoðanirnar svosem ekki breyst það mikið. Jú, vissulega hafa þessir menn skorið verstu meinbugina af kommúnismanum, sem var ein róttækasta útfærsla sósíalismans á sínum tíma.

Þessir íslensku aðdáendur A-Þýskalands voru áður róttækir sósíalistar, félagar í Sósíalistaflokki Íslands og síðar Alþýðubandalaginu. En þeir voru þrátt fyrir það sósíalistar; kommúnisminn var ákveðið þroskaferli (eða vanþroskaferli), sem róttæklingar hér og landi og víða annars staðar gengu í gegnum, með skelfilegum afleiðingum.

En þeir voru sósíalistar og eru það enn. En úr því þeir höfðu vanist á róttækni, hvers vegna gátu þeir ekki bara gengið skrefinu lengra og aflagt sósíalismann með öllu, úr því komið hafði í ljós, að hann væri ónothæfur og færði aðeins hörmungar yfir þær þjóðir, sem illu heillu hefðu fengið hann yfir sig.

 Reynslan hefur sýnt, að sósíalisminn gengur ekki upp. Menn hafa reynt að framfylgja honum með allskonar leiðum, út frá alls konar forsendum. En niðurstaðan er alls staðar sú sama: fátækt, einræðisstjórnir, hörmungar, efnahagsglundroði, óstjórn, osfrv.

Hefði ekki verið nær fyrir íslenska kommúnista, að þvo þennan ósóma algjörlega af sér og gerast bara framsóknarmenn?

 


mbl.is Verri kjör í A-Þýskalandi en í vesturhlutanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband