Af skattaskýrslu, Incoterms og öðrum hörmungum

HPIM0035Jæja, leiðinlegasti tími ársins framundan. Síðustu dagarnir fyrir skattaskýrslu.

Ég hef þann leiða ávana, að geyma skattaskýrsluna fram á síðustu stundu, enda ekkert sem ég geri leiðinlegra. Þvottur, skúringar, tannlæknir og annað slíkt er hreinasta hátíð miðað við þessi leiðindi.

Fyrir utan það, að ég nenni ekki að gera skattaskýrsluna, hef ég varla tíma til þess. Alltof mörg verkefni bíða þess að ná athygli minni, þám allskonar skrif á ensku, þýðingar og almenn textagreining.

En bloggið gefur manni tækifæri til að fríka aðeins út. Hér getur maður skrifar setningu eftir setningu án þess að pæla í strúktur, hrynjanda og lengd, svo ekki sé talað um almenna málfræði eða stafsetningarvillur. Maður getur jafnvel leyft sér að sletta og troða slangri inn.

En a.m.k. hafa "uppteknisheit" mín upp á síðkastið gert það að verkum, að ég hef verla skrifað hér heila málsgrein í einu, heldur komið með einstaka aðfinnslur við fréttir. En núna þarf maður að taka sér frí frá Incoterms, Customs Clearance og öðru því sem maður er að skrifa um á ensku. Ég er hreinlega búinn á því, a.m.k. í bili. Kem sterkur inn þegar kaffið er tilbúið. En þetta þarf að vera tilbúið um svipað leyti og skattaskýrslan. "Aaaaarg", eins og Andrés Önd hefði sagt.

Og í ofanálag á ég að vera að æfa fyrir tvö stk. alþjóðaskákmót, sem framundan eru. Annars vegar er um að ræða "Kaupþing 2007", nokkuð skemmtilegt alþjóðamót, sem hefst daginn eftir afmælið mitt, þ.e. 4. apríl, sama dag og ég fermdist forðum. En þar sem ég held aldrei upp á afmælið mitt breytir þetta enguIMG_0685. "Reykjavik International" fylgir síðan í kjölfarið. "Roar", eins og Björn Knútur litli Þorfinnsson hefði sagt.

En ég kem víst óundirbúinn fyrir þessi tvö mót, amk skáklega. Það kemur vonandi ekki að sök, enda er ég ágætlega staddur, fræðilega. Það sem mig vantar er betra úthald. Síþreytan ætlar mig lifandi að flá í þessum erfiðu mótum. Sl ár var erfitt. Þá var maður að tefla vel og byggja upp góðar stöður, en verða síðan batteríslaus og leika öllu niður. Annus horribilis, eins og Beta sagði 1992 eða 1993. Merkilega kom það saman við þann tíma sem ég var í Bretlandi!

Það er reyndar meiri hætta á því núna en áður. Tvö mót í röð, 20 langar og erfiðar skákir á c.a. 15-16 dögum. Ég hef átt nógu erfitt með 3 skákir á 2 dögum.

Þetta stendur vonandi allt til bóta. Ég hef verið duglegri að mæta í ræktina undanfarið en fyrr á árinu og í haust. Var reyndar að koma þaðan rétt áðan. Ég á þó enn langt í land og tek ubersyrpu alla næstu viku og fram á mót, og hæfilega áreynslu meðan á móti stendur. Ég þyrfti helst að komast að hjá Yasmine, sem píndi mig svo rosalega hér áður, að ég verð henni eilíflega þakklátur. Ég hef aldrei verið í eins góðu formi og þegar ég var í Planet Pulse hér í den, hjá Jónínu & co. Í dag er ég svipur hjá sjón -- svona eins og Samfylkingin.

En jæja, setti hér inn að ofan tvær myndir. Sú fyrri er frá hótelinu í Obrenovac, Serbíu, 2005. Þá var ég svo gjörsamlega að niðurlotum kominn eftir einhverja skákina, að ég tók smá slökun. Seinni myndin er frá Obrenovac, 2006. Fyrri myndina tók Lenka Ptacnikova, sterkasta skákkona Íslands, hina síðari Róbert Lagerman Harðarson. Burtséð frá öllu öðru...eignaðist ég góða vini í þessum tveimur ferðum.

HPIM0122En jæja, verð að fara að gera eitthvað. Incoterms bíður. Lauma með einni mynd frá Obrenovac 2005, þar sem ég lagði mig smástund fyrir utan internet-kaffihúsið þegar langur dagur var að kvöldi kominn, og Lenka enn að senda Ómari sínum einhverjar hugljúfar kveðjur á msn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband