Margir vandræðagemlingar í Liverpool!

Já, nú kemur þetta í bakið á Púlurum. Hvað er Benitez að hugsa, að safna saman vandræðagemlingum í liðið, t.d Bellamy, Pennant og svoleiðis köllum, til viðbótar við þá sem voru þar fyrir.

En síðan vil ég spyrja: hvað er golkylfa? Mér sýnist skrifarar á mbl.is vera farnir að gera óeðlilega mörg mistök. Maður er daglega að sjá asnalegar stafsetningarvillur og slæma texta. Og fyrir þetta fá þeir borgað. Ég benti á þetta síðasta vor, og fékk þá skammir í hattinn frá starfsmönnum mbl.is. En ég skil ekki í yfirmönnunum, að láta þetta viðgangast. Það getur ekki verið svo erfitt að skrifa þó ekki sé nema þokkalegan texta.


mbl.is Bellamy lamdi Riise með golkylfu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband