Skeljungsmótið - Skákþing Reykjavíkur 2008 er hafið

Skákþing Reykjavíkur 2008 1. umferð 03358 skákmenn mættu til leiks á Skeljungsmótinu - Skákþingi Reykjavíkur 2008, sem hófst í dag í Skákhöll Reykjavíkur í Faxafeni 12.

Meðal keppenda eru stórmeistarinn Henrik Danielsen, alþjóðlegi meistarinn Sævar Bjarnason og FIDE-meistararnir Ingvar Þór Jóhannesson, Sigurður D. Sigfússon, Davíð Kjartansson, Guðmundur Kjartansson, Sigurbjörn J. Björnsson og Halldór G. Einarsson, en sá síðarnefndi er að snúa aftur til leiks eftir langt hlé. Einnig er skákmeistari T.R., Hrafn Loftsson, meðal keppenda og fjöldi annarra sterkra og skemmtilegra skákmeistara, allt frá unglingum upp í aldraða.

Keppendalisti er birtur á heimasíðu mótsins, en nokkuð var um að skráðir keppendur hafi ekki mætt og óskráðir skákmenn mætt á staðinn.

Á myndinni eru Matthías Pétursson (G. Péturs Matthíassonar) og stórmeistarinn Henrik Danielsen að tefla á 1. borði. Matthías hefur hvítt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband