KR á botninn!

sumarid2007Jæja, ágætt. En agalegt að KRingar skyldu jafna gegn ÍA. En Skagamenn gátu ekki sloppið endalaust!


Nú fer þetta að verða spennandi. En helst vildi ég losna við (sorry) HK eða Víking. Það yrði sjónarsviptir af KRingum og mínum mönnum í FRAM.


mbl.is Fram sendi KR á botninn með 3:0 sigri gegn HK
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skaginn að vinna KR?

Ja, staðan er 1-0 fyrir ÍA, eða eiginlega 0-1.


Nú ætti vinur vor Einar K.  að gleðjast. Rammari ÍA mann þekki ég ekki, og fáir sem ég þekki eru jafn ánægðir þegar KR tapar!

Áfram ÍA
mbl.is Valur og FH sigruðu - Guðmundur tryggði KR stig gegn ÍA
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gay heimsmeistari

Þetta hefur verið mikið gleðihlaup hjá honum þarna á HM!!!???
mbl.is Tyson Gay varð heimsmeistari í 100 metra hlaupi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tíðindalaust

Friðrik og Panno sömdu stutt jafntefli í síðustu umferð, enda vafalaust orðnir þreyttir, gömlu mennirnir.


Þrátt fyrir að hafa mátt sæta ryðgun, tefldi Friðrik frísklega og sýndi gamla takta. Og vonandi mun hann ekki leggja skákina aftur á hilluna, heldur grípa í mennina reglulega á næstunni.


mbl.is Friðrik og Panno gerðu jafntefli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erilsamt hjá lögreglu

Ég er hættur að botna í, hvað gengur eiginlega að landanum. Ástandið virðist sífellt vera að versna um helgar, og ekki aðeins að vandræði séu í miðbænum og á Suðurnesjum, eins og venjulega, heldur er þetta farið að breiðast út um alla borg og til úthverfanna.


Ég er farinn að halda, að rót alls þessa liggi í, að efnishyggjukapphlaupið hafi rifið í sundur sálir manna, sem eftir standa með tómleika hið innra, í sálu sinni og anda, og reyna að fylla þetta upp með því að drekka frá sér restina af vitinu um hverja helgi og helst að fá einhverja líkamlega útrás líka, annað hvort í slagsmálum eða með ofuráherslu á lárétta líkamsútrás.


Og þjóðin segist vera hamingjusöm í könnunum. En ég held samt að hún sé, heilt yfir litið, orðin tóm og þreytt á lífsgæðakapphlaupinu. Menn verða nefna ekki hamingjusamir af peningum, en eigi menn nóg af þeim, hafa Íslendingar etv eitthvað til að drepa tímann með í stað þess að láta sér leiðast.


mbl.is Fjöldi slagsmála á höfuðborgarsvæðinu í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Friðrik

Jæja, Friðrik hafði hvítt. Málið er, að hann er veikur með hvítt. Hann teflir upp á jafna stöðu, með hvítt, í stað þess að berjast fyrir frumkvæðinu. En hann er seigur með svörtu.


En gaman að sjá Friðrik aftur við skákborðið. Lengi lifir í gömlum glæðum.


mbl.is Friðrik gerði jafntefli í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 26. ágúst 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband