Milton Berle -- konungur háðfuglana

Ég var að stofna áðan nýjan "flokk" hér á blogginu mínu, MILTON BERLE. Ástæðan er, að mig langar til að deila hér einstaka sinnum, eða eins og ég nenni, nokkrum af bröndurum eða athugasemdum þessa konungs háðfuglana. Það merkilega er, að þegar maður les þetta frá síðu til síðu sér maður, að hundruðir brandara, sem maður hefur áður heyrt í einhverju samhengi, eiga rætur sína að rekja til Berle, sem annað hvort samdi þá sjálfur, keypti þá frá öðrum, eða hugsanlega stal þeim frá einhverjum óþekktum, lagfærði og gerði fræga. Ég veit annars lítið um þau mál.

Þegar ég bjó í stór-Washington DC 1998 labbaði ég einu sinni sem oftar niður á Dupont Circle. Í einni af slíkum ferðum gekk ég inn í bókabúð þar sem ég sá safnrit með nokkrum af bröndurum Berles: "Private Joke File". Það er úr þessari bók sem ég ætla að lauma nokkrum völdum bröndurum um ákveðin málefni. Margir þessara brandara skiljast illa á íslensku og þá mun ég annað hvort sleppa þeim, eða birta á ensku. Annars reyni ég að þýða það, sem hægt er, og jafnvel snúa þeim upp á menn eða málefni.

ALDUR

1. Þú ert orðinn gamall þegar þú manst þá tíma, þegar maður stakk útvarpinu í samband við innstunguna, ekki tannburstanum.

2. Þú ert orðinn gamall þegar þú þreytist við að hringja langlínusamtöl.

3. Þú ert orðinn gamall þegar þú tekur meiri tíma í að lesa matseðilinn en horfa á gengilbeinuna.

4. Lífið er ósanngjarnt. Hinir ungu vita ekki hvað skal gera, en þeir eldri geta ekki gert það sem þeir vita.

5. Þú ert orðinn gamall þegar þú verður hrifinn af konu fyrir það eitt, að ná þremur tebollum úr einum tepoka.

6. Þú ert orðinn gamall þegar þú átt í erfiðleikum með að muna þrjú atriði: nöfn, andlit....og ég man ekki hvað það þriðja var.

7. Þú ert orðinn gamall þegar hárkollan er orðin grá.

8. Þú ert orðinn gamall, þegar þú nærð loksins að lesa konur eins og bók, en bókasafnskortið er löngu útrunnið.

9. Þú ert orðinn gamall þegar þú manst þá tíð, þegar það tók styttri tíma að fljúgja til Kaupmannahafnar, en að komast heiman frá þér og upp í flugvélina.

10.Þú ert orðinn gamall þegar þig verkjar í allan líkamann, nema þá staði sem virka ekki lengur.

11. Þú ert orðinn gamall, þegar konan sem daðrar við þig í bíóinu langar í poppkornið þitt.

12. Þú ert orðinn gamall, þegar þú þykist vera 20 árum eldri, svo fólk geti hrósað þér fyrir að vera unglegur.

13. Þú ert orðinn gamall, þegar þú ert hættur að fara á "deit" með konum á þínum aldri...af því þær eru allar látnar.

14. Þú ert orðinn gamall þegar þú átt ekki einn einasta óvin í öllum heiminum -- enda dauðir fyrir löngu.

15. Þú ert orðinn gamall þegar þú virðist vera föðurímynd fjölda kvenna í miðbænum; þær eru alltaf að biðja þig um pening.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband