Goodbye Guðjón

Mér sýnist allt stefna í að Skaginn falli og að þjálfarinn falli áður. En ég fatta þetta ekki. Skaginn er með góðan mannskap og þjálfara sem á amk að vera góður og væri góður ef hann myndi leyfa leikmönnunum að fara framyfir miðju.

Ég spái því að Inga Jóna Þórðardóttir taki við Skaganum og haldi liðinu uppi!

Æjá, eða Óli Þórðar og að 5 mótherjar slasist alvarlega  í leikjum gegn Skaganum fram til hausts.


mbl.is Blikar kafsigldu Skagamenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Nú er ég ekki sammála þér Snorri. Það er rétt að það sást til Skagamanna við heimili Ingu Jónu. Þeir voru að tala við Geir Haarde

Sigurður Þorsteinsson, 20.7.2008 kl. 20:08

2 Smámynd: Snorri Bergz

Aha, soleiðis. Kannski hann og Guðjón skipti um djobb?

Snorri Bergz, 20.7.2008 kl. 20:23

3 Smámynd: Gísli Sigurðsson

Mér þykir með ólíkindum langlundargeðið sem stjórnarmenn ÍA sýna þjálfaranum við þessar aðstæður. Enn skrýtnara þykir mér að Guðjón sjálfur sjái ekki sóma sinn og víki fyrir nýjum manni. Hann er bersýnilega kominn í þrot með hugmyndir. Ég held að hann sé búinn að nálgast verkefnið frá öllum hugsanlegum hliðum og það skeður ekkert.

Gísli Sigurðsson, 20.7.2008 kl. 21:00

4 Smámynd: Snorri Bergz

Já, Guðjón á að segj af sér, í stað þess að láta reka sig og fá þá full laun, sem ku vera milljón á mánuði c.a., út samningstímabilið.

Er honum illa við ÍA, eða...?

Ætlar hann að eyðileggja félagið, bæði fótboltalega og fjárhagslega (ef það þarf að borga tveimur þjálfurum út tímabilið)?

Guðjón var hetja á Skaganum. Ef hann segir ekki af sér strax mun hann verða álíka vinsæll á Skaganum og inflúensufaraldur.

Snorri Bergz, 20.7.2008 kl. 21:16

5 Smámynd: Egill Óskarsson

Það er nú ekki Guðjóni að kenna ef að knattspyrnudeild ÍA hefur ákveðið að samþykkja óuppsegjanlegan samning upp á einhverjar fáránlegar launatölur. Þeir máttu alveg búast við því að það gæti blásið á móti.

Er ÍA liðið með góðan mannskap? Miðað við hvað? Ekki kostnað og væntingar allavega. 

Egill Óskarsson, 20.7.2008 kl. 21:22

6 Smámynd: Guðmundur Björn

Þar hefur þú rangt fyrir þér Snorri.  Þetta er ekki eins og í Vesturbænum.

Guðmundur Björn, 20.7.2008 kl. 21:30

7 Smámynd: Snorri Bergz

Egill:

Já, auðvitað var þetta problem ÍA-stjórnar að gera svona fáránlegan samning. En Guðjón á að sjá sóma sinn í að segja af sér.

Ja, persónulega finnst mér ÍA liðið vera ágætlega skipað.

Guðmundur: Nú skil ég ekki, en ef þú ert að dissa KR, vil ég endanlega fá útskýringar, svo ég geti tekið undir :)

Snorri Bergz, 20.7.2008 kl. 21:39

8 Smámynd: Björn Birgisson

Það er mikið bullað í boltanum, einnig hér í blogginu. Guðjón er ágætur þjálfari, hann hefur margsýnt það. Liðið er einfaldlega lélegt, leikmenn standa engan veginn undir væntingum. Það er málið. Ef Guðjón nær engu út úr þessum mannskap - hver er þá líklegur til þess? Hef fulla trú á að Skaginn bjargi sér - og þá mest fyrir tilstilli Guðjóns - en aðeins ef hann hættir sínu einkastríði við KSÍ og dómara, sem hafa ekki gert Skaganum nokkurn skapaðan hlut. Tiltekt í eigin ranni - það er málið.

Björn Birgisson, 20.7.2008 kl. 21:40

9 Smámynd: Snorri Bergz

Ja, ég held að Guðjón sé hættur að nenna þessu. Hann lætur liðið spila leiðinlegasta bolta norðan Alpafjalla, þar sem leikmenn verða nánast að kalla á bekkinn og biðja um leyfi til að fara yfir miðju.

Það er þessi öfga-varnarhyggja sem er að eyðileggja ágætt lið, já og allskonar rugl í kringum liðið, nöldur í dómurum og óþarfa grófleiki innan vallar. Sjáum bara hvað Fjölnir hefur náð langt, með ekkert sérstakt lið á pappírnum, með því að spila sóknarbolta og hafa gaman að þessu.

En hvað er gaman við að spila bolta undir harðstjórn. Það verður að hafa gaman að þessu líka, þá gengur betur.

Snorri Bergz, 20.7.2008 kl. 21:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband